Umsögn Femínískra fjármála um fjárlagafrumvarpið 2027

Greiningar á kynja- og jafnréttisáhrifum þurfa að skila sér í ákvörðunum

Femínísk fjármál hafa skilað umsögn um fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027. Félagið fagnar því að kynja- og margbreytileikasjónarmið séu sýnilegri í frumvarpinu en oft áður. Enn er þó bil á milli greiningar á jafnréttisáhrifum og forgangsröðunar fjármuna. Greiningar skila litlu ef niðurstöður þeirra hafa ekki áhrif á ákvarðanir.

Hver bera kostnaðinn af hallalausum ríkisrekstri?

Félagið varar við því að hallalaus ríkisrekstur verði markmið óháð afleiðingum. Meta þarf hver bera kostnaðinn af aðhaldi og hvort það veiki þjónustu, lífskjör og jafnrétti. Þegar opinber þjónusta skerðist hverfur þjónustuþörfin ekki. Hún getur færst yfir á heimilin, þar sem konur bera enn stærri hluta ólaunaðrar umönnunar.

Í umsögninni er meðal annars gagnrýnt að hækkun komugjalda í heilsugæslu og afnám vaxtabóta séu boðuð þrátt fyrir að jafnréttismat stjórnvalda bendi til neikvæðra áhrifa á konur og tekjulægri hópa. Þá er bent á rýrnun barnabóta og húsnæðisbóta að raunvirði og lækkun stofnframlaga til almennra leiguíbúða. Félagið kallar eftir að stuðningskerfin haldi verðgildi sínu og að húsnæðisöryggi verði tryggt.

Fæðingarorlof – raunhæfur kostur fyrir alla foreldra?

Femínísk fjármál fagna hækkun greiðsluþaks í fæðingarorlofi en leggja áherslu á að einnig þurfi að bæta stöðu tekjulágra foreldra.

Fyrirhyggjuleysi í jafnréttismálum

Félagið gagnrýnir einnig að umfangsmikil jafnréttisverkefni eigi að rúmast innan þrengri fjárhagsramma. Sérstaklega er ítrekað enn á ný að fjármögnun þróunar virðismatskerfis í þágu launajafnréttis nægi ekki ein og sér. Stjórnvöld þurfa að undirbúa fjármögnun mögulegra launaleiðréttinga vegna áralangs vanmats á kvennastörfum.

 

Lesa umsögn Femínískra fjármála í heild á vef Alþingis.

Femínísk fjármál